blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

6.10.2005

Föstudagur

Fórum á landsleikinn á miðvikudaginn! þrusu gaman og mikil skemmtun :) verð nú samt að muna að taka með mér kíkir næst... þetta eru engin smá smíði sem eru trítlandi þarna um á grasinu;) Alveg þúsund kall virði. Mér datt í hug að ef maður hefði engan áhuga á leiknum sem slíkum þá væri þetta eins og fara á ungfrú ísland. Maður skyldi ekki baun í tilganginum og væri mökk sama.. væri bara að skoða það sem væri í boði! hhmmm?
Ætlum að vera í bænum um helgina enda árshátíð í kvöld og 10 ára afmæli hjá dýrinu á sunnudaginn. Þetta verður ef til vill undalegasta árshátið sem ég hef farið á.. eða nei..´vinnuárshátiðin mín var all undarleg.. en þessi fer pottþétt í sama flokk. En ég hlakka til og er viss um að það verður stuð :) enda þótt við enduðum bara tvö einhversstaðar þá erum við svo góð saman og alltaf gaman hjá okkur.. að það skiptir engu máli. Hann er bara mest ljómandi.

6.06.2005


A leidinni i laekinn Posted by Hello


Birta og Nott Posted by Hello


Camping trip last weekend J temp around 5�C
 Posted by Hello


Birta�s 10th Birtday Party with her friends Posted by Hello

6.03.2005

Fleiri dýr og Djúran

Ég fréttti í gær að Birta fengi annan hamstur í afmælis gjöf .. ufff... Vinkonan fékk að gefa henni eitt dýr með þeim skylirðum að dýrið væri kvenkyns! Kanski eiga þá þær bara eftir að éta hvor aðra..!! Veit ekki .. sjáum hvernig þetta fer... ég ætla amk ekki að þrífa upp hræið... ooohh fæ bara hroll við tilhugsunina.. hvað þá afkvæmi frá þessari tegund OJJ!! En allt er klárt fyrir partyið á eftir... buið að kaupa 40 pylsur og tilheyrandi.. og ég "bakarinn" mallaði 2 skuffukökur í gærkveldi svo allir fengu örugglega sykursjokk sem er nauðsynlegur fylgihlutur. Mér hefur farið ansi mikið fram í kökugerð.. það eru ekki svo mörg ár síðan að securitas mætti á spani á svæðið og tilbuin að hringja í slökkviliðið.. ruddist inn í íbúðina og ætlaði að bjarga öllum.. en þá stóð ég í eldhúsinu með hárblásara til að minnka reykinn... eftir að næstum hafi kviknað í afmælistertu dóttur minnar.
Ætlið þið á Duran Duran.. eða Djúran :) Húsið opnar kl 18 þannig eg ætla að hafa pre-party hjá mér frá fjegur !!! Endilega komiði!!!! Topp tónlist í boði djúran úr gettóblasternum hennar Birtu og stemning rifjuð upp í anda Don Cano og millert ;)

6.02.2005

Coldplay

smellið á Coldplay og hlustið á nýju plötuna X and Y .. (neðst á síðunni!) Hún er bara mögnuð!

Andlegur undribúningur fyrir 18 tíu ára

Fyrsti í afmæli er á morgun.. Búist er við 18 10 ára einstaklingum! uff þetta á eftir að vera bara geðveiki! Krakkar fá svona gæggjunar kast í afmælum.. ef dyrabjallan hringir æpa allir eins og þeir geta svo hlaupa allir í röð fram til að sjá hver er að koma og svo hlaupa allir æpandi aftur inn.. við erum að tala um 18 skipti á morgun! Ultimate planið er að rumpa þessu af.. engin áföll og fara svo út úr bænum strax á eftir! Núna er stefnan tekin vestur! Erum bara bjartsyn og ætlum að vera í tjaldi alla helgina :)